Flensudjöfull
Ég gerði þau afdrifaríku mistök að fara í vinnuna á miðvikudaginn. Ég stóð þá í þeirri meiningu að ég væri orðin hress. Eftir vinnu lagðist ég upp í rúm og er búin að liggja þar síðan. Ég man varla eftir að hafa fengið svona slæma flensu. Kannski er ég með fuglaflensuna!?!
Hildur er í New York. Júlía er á Þingvöllum. Íris er í London. Ég er uppi í rúmi. Það þykja mér ekki bróðurleg skipti. Reyndar held ég að það sé ákaflega vanmetið að liggja og rotna í sínu eigin rúmi. Æ, ég er með óráði.
Ég get allavega glatt mig með því að ég get horft á Idolið í kvöld. Það gefur lífi mínu lit. Það er Big band þema sem ég held að verði stórskemmtilegt. Þegar þátturinn er komið á þetta stig þá vill maður helst ekki að neinn detti út.
Ég er búin að reyna að finna eitthvað meira að segja, ég man ekki eftir neinu. Ég segi því bara: Góða helgi.

Bloggarar
Litlir bloggarar