Tímaleysi
Það er svo mikið að gera í vinnunni að ég hef aldrei tíma til að blogga. Ég var vön að nota dauðu tímana til að blogga, til dæmis þegar ég leysti af á símanum og svoleiðis. Núna er ekki neitt til sem heitir dauður tími. Ég er líka ofsalega löt við að vera í tölvunni þegar ég er heima hjá mér. Kannski verður bloggið mitt þar af leiðandi svolítið lélegt á næstunni, ekki að það hafi verið eitthvað til að hrópa húrra fyrir :/
Samt... fréttir hef ég! Ég er búin að skrá mig í söngskóla og byrja í næstu viku :) Æjá... held að þetta sé sniðugt, syng daginn út og inn og veit fátt skemmtilegra. Maður lærir ýmislegt meira en bara sönginn þannig að þetta verður örugglega skemmtilegt. Mér skilst að önnin endi með tónleikum og svo fær maður líka að syngja inn á geisladisk (fyrir sjálfan sig bara). Spennó!! Það eru líka tvær aðrar hér í vinnunni minni sem eru að skella sér í þennan skóla. Það eru þrír saman í hóp þannig að við fáum að vera saman í einum hóp! Ég er farin að hlakka rosalega til, ég sem ætlði nú ekki út í þetta.....
Desperate Housewives í kvöld, bannað að gleyma! Hildur!

Bloggarar
Litlir bloggarar