Nýja starfið og ammmmæli!
Ég er búin að vera í lánadeildinni alla þessa viku og líkar það alveg ótrúlega vel, það er mikið mikið að gera og tíminn líður hraðar en andskotinn. Mér finnst ég vera nýkomin í vinnuna þegar ég er allt í einu á leiðinni heim aftur, svona á þetta að vera!!
Í dag á hann faðir minn góði og besti afmæli og vil ég óska honum til hamingju með daginn. Eftir tvo daga á enginn annar en YOURS TRULY afmæli - verð 24 ára hvorki meira né minna. Ég er ánægð með það, mér finnst 24 flottari tala en 23. Í tilefni af þessum merkisatburði ætlar Hildur besta mín að bjóða mér í leikhús og út að borða á A Hansen á laugardaginn. Það kemur svo í ljós hvað verður gert eftir það allt saman. Ég djammaði síðast í nóvember 2004 þannig að það er spurning hvort það sé kominn tími á að skella sér kannski aðeins á smá skrall. Jájá, sjáum hvað setur.
Nú fer ég að sofa þar sem ég á að mæta með morgunkaffið í vinnuna í fyrramálið. Jæks, maður er alltaf með smá kvíðahnút í maganum þegar maður á að sjá um morgunkaffið... það er sko lögreglumál að klikka á því!!!

Bloggarar
Litlir bloggarar