Ástand
Það eru mikil veikindi búin að herja á okkur í Álfkonuhvarfi 37. Rikki var veikur mánudag, þriðjudag og miðvikudag. Ég var svo veik á miðvikudag og fimmtudag. Andrea var veik í síðustu viku þannig að ég fór í vinnuna í morgun í góðri trú um að nú væru öll veikindi að baki - í bili að minnsta kosti. Klukkan hálfellefu var hringt í mig af leikskólanum, þá var litla dísin búin að gubba tvisvar sinnum um morguninn! Rikki fór og sótti hana þar sem ég átti mjög erfitt með að komast frá. Andrea er búin að gubba einu sinni síðan hún kom heim og er mjög slöpp greyið. Pant samt ekki fá gubbupest. Ég fékk gubbupest í september sem dugir mér alveg næstu árin takk!
Á mánudaginn byrja ég í lánadeild, í rauninni eiga breytingarnar sér stað á eftir þar sem við flytjum okkur á milli skrifborða þá en ég byrja ekkert fyrir alvöru fyrr en eftir helgi. Ég get ekki beðið, þetta verður skemmtilegt. Erfitt en skemmtilegt!
Idol í kvöld, spennó!!! Vona að stöð 2 verði komin í lag hjá mér fyrir kvöldið. Þeir sem búa í Álfkonuhvarfi eiga bara greinilega ekkert að fá að horfa á stöð 2 nema svona öðru hverju, kannski tvo daga í viku! Svona er þetta að búa Rokrassgati 37, 203 Rassaboru.

Bloggarar
Litlir bloggarar