Þreeeyyytt....
Ég svaf yfir mig í morgun takk fyrir takk. Hrökk upp kl. 8:50 og ræsti liðið, hringdi í vinnuna og sagði þeim þessa hryllingsögu. Ég mætti svo í Bankastrætið kl. 10 þreytt og mygluð!
Ég fór með Ester á kaffihús í gærkvöldi, loksins, við erum ekki búnar að hittast síðan í september. Gaman að hitta hana og nóg að tala um! Eftir kaffihúsið kom ég aðeins við hjá henni Hildi í smá kaffi (reyndar ekkert kaffi) og var ég svo ekki komin heim til mín fyrr en rétt fyrir kl. 2 í nótt. Kannski útskýrir það "yfirsofunina" í morgun....
Nú er ég byrjuð í vigtun hér í vinnunni. Þannig er að nokkrar konur hér fara í leikfimi í hádeginu á mánudögum og miðvikudögum. Á mánudagsmorgnum vigta þær sig og halda svo bókhald yfir kílóin. Ég er ekki með í þessari leikfimi (enda myndi ég aldrei nenna að nota hádegið í eitthvað annað en að éta) en ég ætla að vera með í vigtuninni því ég er að reyna að þyngja mig. Já ykkur finnst þetta mjög spennandi, viðurkennið það bara! Síðasta mánudag var ég 51,3 kíló já og hafið þið það! 6 kílóum þyngri en ég var í haust!
Mæli með þessari síðu HÉRNA Stundum fer ég inn á hana bara til að hlæja. Færeyska er frábær!

Bloggarar
Litlir bloggarar