Skítapest
Við fjölskyldan erum öll komin með einhverja skítapest. Andrea greyið hóstaði í alla nótt og er svo með hálsbólgu og smá hita. Við Rikki erum bæði með hálsbólgu, kvef og beinverki. Ekki skemmtilegt ástand. Ég er í vinnunni núna en Rikki heima með Andreu, ætli ég verði ekki heima með henni á morgun.
Íbúðin okkar er eiginlega alveg komin í stand. Rikki og Viddi vinur hans skelltu listunum á parketið í gær og svo verður væntanlega byrjað að setja flísar á eldhúsið seinnipartinn í dag... þá er ekkert eftir! Gluggatjöldin eiga reyndar eftir að koma, þau koma eftir rúma viku en á meðan notumst við við þessi glæsilegu lök úr Rúmfó ;)

Bloggarar
Litlir bloggarar