Lítið í fréttum
Ekki mikið að frétta. Bara 4 dagar til jóla og ég er alveg ótrúlega spennt, einhver voðalegur jólafílingur í mér þessa dagana. Allt er klappað og klárt fyrir utan nokkrar gjafir sem eiga eftir að fara í pappír. Ó ég veit, það tekur lengri tíma en maður heldur!
Núna sit ég í vinnunni með kaffið mitt og er eitthvað að fresta því að byrja á verkefnum dagsins, einhver leti í mér þessa dagana. Undanfarnar vikur hef ég átt alveg gífurlega erfitt með að skríða fram úr rúminu á morgnana, ég veit ekki hvað þetta er, kannski bara skammdegið.
Hið ótrúlega gerðist í morgun. Hún Andrea Ósk vaknaði brosandi og sagðist ætla að vera dugleg að fara í leikskólann... og hún stóð við það! Hún er búin að gráta á hverjum einasta morgni síðan hún byrjaði í nýja leikskólanum um miðjan nóvember, þetta var kærkomin tilbreyting verð ég að segja, vona að þetta haldist svona áfram!
Jæja, hef lítið að segja, ætla að fara að gera eitthvað gagn....

Bloggarar
Litlir bloggarar