Been there... broke that!

miðvikudagur, desember 14, 2005

Despó

Við Rikki keyptum okkur fyrstu seríuna af Desperate Housewifes um daginn og við erum HÚKT! Ji minn hvað þetta eru góðir þættir, ég er ekki að sofna fyrr en kl. 3 á nóttunni því ég get ekki hætt að horfa. Ég sá aldrei þættina á meðan þeir voru sýndir og vá ég held líka að ég hefði ekki meikað að bíða í heila viku eftir næsta þætti. Tek það samt fram að ég á eftir að sjá þrjá síðustu þættina þannig að ekki blaðra neinu ef það er eitthvað sem á eftir að koma fram ;)

Í kvöld verður haldið í verslunarleiðangur með Hildi. Á eftir að kaupa nokkrar jólagjafir, samt alls ekki margar. Það er einhvernveginn allt eiginlega klappað og klárt. Jólaskrautið er komið upp heima, meira að segja jólatréð líka! Fórum svo í gær í heildsöluna til tengdó og keyptum jólagjafir handa öllum krökkunum í ættinni. Ánægð að vera að klára þetta.

Stuttur vinnudagur í dag, klukkan tvö mæti ég á jólaball í leikskólanum hennar Andreu. Það verður væntanlega mikið stuð. Líka gaman að fara og vera með henni þar sem hún virðist ekki alveg vera að plumma sig þarna greyið. Vonandi fer það allt að koma...

Á ég ekki að fara að vera duglegri að blogga?


Gestir síðan 10. nóv. 2005:

Hit Counter
Website Hit Counters