Been there... broke that!

föstudagur, nóvember 18, 2005

Allt að gerast

Jájá, þetta er allt í gangi. Búið að kaupa parketið og það verður lagt á næstu dögum. Ef allt gengur eins og það á að gera þá getum við flutt inn fyrir eða um næstu helgi! Þá hef ég góðan tíma til að þrífa og ganga frá í Lækjasmáranum!

Annars er nóg að gera um helgina. Afmæli á morgun og jólaföndur í vinnunni á sunnudaginn, það verður bara gaman. Rikki getur dúddað í nýju íbúðinni á meðan! :)

Hver ætlar að sjá The exorcism of Emily Rose?? Ég ætla pottþétt að sjá hana þó ég sofi væntanlega ekki í einhverja daga á eftir...

Góða helgi.


Gestir síðan 10. nóv. 2005:

Hit Counter
Website Hit Counters