Þreytt
Ég er svo þreytt og mig langar mest að sofa allan daginn! Ég veit ekki hvað er hlaupið í mig en það er einhver rosaleg þreyta og hálfgerður leiði kominn yfir mig. Kannski er það bara skammdegið.
Næsta föstudag ætlum við Rikki að fara eitthvað út saman. Ætlum að byrja á því að fara út að borða, mælið þið með einhverjum góðum veitingastað? Svo erum við að hugsa um að kíkja í bíó og svo bara heim með spólu og nammi og hafa það notalegt. Silja mamma hennar Töru var svo góð að bjóðast til að hafa Andreu um nóttina , Andrea á líka bara eftir að hafa gaman að því.
Við fórum í gær upp í Álfkonuhvarf að kíkja á hvernig gengi. Innréttingarnar eru bara að fara upp hvað úr hverju, eru komnar upp í íbúðirnar við hliðina á okkur þannig að þetta er orðið ótrúlega spennandi. Líklegast bara tæpur mánuður þangað til við fáum afhent, eins gott að það standist! Nenni ekki að standa í einhverri töf.
Jæja, ætla að fá mér kaffi og byrja að vinna. Reyni að vera að duglegri við að blogga....

Bloggarar
Litlir bloggarar