Been there... broke that!

miðvikudagur, október 26, 2005

Mætt til vinnu

Jæja, þá er ég mætt til vinnu eftir fjögurra daga "frí". Hún Andrea mín er búin að vera lasin eins og víst helmingurinn af börnunum í leikskólanum hennar. Þegar ég kom svo í vinnuna í morgun þá kom það í ljós að það er bara hálfur vinnustaðurinn heima með flensu! Ég vona að ég sleppi við þetta!

Á föstudagskvöldið er stefnan tekið á smá djamm. Það er vinnufjör hér. Mæting er kl. 19 í Bankastrætið þar sem fólk ætlar að hittast og fá sér einn til tvo drykki og svo verður haldið í Loftkastalann á tónleikinn Bítl... sem ég er reyndar búin að sjá tvisvar en what the hell, maður skellir sér! Ætli maður kíki ekki svo eitthvað út á lífið eftir þetta, kominn tími til, djammaði síðast í nóvember 2004!

Annars er íbúðin okkar alveg að verða tilbúin, þetta er orðið gríðarspennandi. Þið sem viljið getið farið inn á heimasíðuna hennar Andreu www.andrea.barnaland.is og inn í albúmið, neðsta albúmið heitir "Íbúð" og þar eru myndir sem ég tók í gær. Þið sem hafið ekki lykilorðið sendið mér bara póst :)


Gestir síðan 10. nóv. 2005:

Hit Counter
Website Hit Counters