Letihelgi
Ég gerði svo sem ekki mikið þessa helgi. Fór jú á Bítlið á föstudagskvöldið, það var gaman eins og í hin tvö skiptin en mér fannst setja strik í reikninginn hversu skítkalt var inni í salnum. ÚFF! Ég var í peysu, jakka og með trefil en ég bara skalf. Var heillengi að hlýja mér eftir að ég kom heim! Það var sem sagt ekkert gert eftir Bítlið sökum veðurs, ég þorði ekki einu sinni á bílnum mínum þannig að ég fékk far fram og til baka!
Á laugardaginn fórum við á smá rúnt, kíktum í Kringluna og fengum okkur ís ofl. Um kvöldið varð ég svo lasin takk fyrir! Ég allt í einu stíflaðist upp og fékk rosalega eyrna- og hálsbólgu. Ég hélt mig þess vegna inni í gær og er mætt í vinnuna núna svona sæmileg til heilsunnar, pínu stífluð en annars fín svo sem. Ætla að halda mig inni í kvöld og vona að ég verði ennþá betri á morgun.
Vorum að kaupa okkur borðstofusett!! Ég fékk þá að fínum prís á barnalandi. Ég setti mynd af því í neðsta albúmið á heimasíðunni hennar Andreu ef þið viljið kíkja. Svo er svo frábært að við megum bara sækja það um leið og við flytjum :)

Bloggarar
Litlir bloggarar