Been there... broke that!

mánudagur, október 17, 2005

Helgin

Helgin var fín. Hittum Stjána og Möggu á Players á föstudagskvöldið og fengum okkur að borða. Við fórum svo í sjoppu þar sem var leigð spóla og fullt af snakki og nammi keypt, héldum þetta fína kósíkvöld!

Laugardagurinn var ennþá betri því þá vorum við barnlaus fram að kvöldmat. Notuðum daginn í að kíkja upp í Álfkonuhvarf og bara þvælast saman. Við verðum eiginlega að vera duglegri við að koma dömunni í pössun.... Á sunnudaginn var farið í Húsdýragarðinn, Kolaportið, Kringluna og ég veit ekki hvað og hvað. Við mæðgurnar kíktum svo í heimsókn til pabba og skruppum með honum út á tjörnina á Seltjarnarnesi. Þessi helgi var eiginlega bara frábær.

Ég keypti mér bókina "Myndin af pabba" í gær. Ég byrjaði á henni seinnipartinn og sofnaði svo ofan í hana um kl. 22. Ég bara gat ekki hætt að lesa enda á ég bara nokkrar blaðsíður eftir. Þegar þessi bók kom út ákvað ég eiginlega að lesa hana ekki... en svo bara varð ég! Það sem þessar greyið systur hafa þurft að ganga í gegnum, það er hræðilegt. Maður getur ekki einu sinni ímyndað sér hvernig þetta hefur verið en bókin gefur manni einhverja mynd af því. Ég mæli með því að fólk lesi þessa bók... eiginlega hvort sem það treystir sér til þess eða ekki.


Gestir síðan 10. nóv. 2005:

Hit Counter
Website Hit Counters