Staðreyndir
Ég var víst klukkuð um daginn. Í gær var ég að dúlla mér við að finna staðreyndir um mig, þær urðu svo aðeins fleiri en fimm. Skelli þeim bara öllum inn:
1. Ég er ótrúlega óákveðin. Það getur tekið mig heilan dag bara að ákveða hvað ég eigi að hafa í matinn það kvöldið, er hrikalega hrædd við að taka vitlausar ákvarðanir.
2. Mér finnst hangikjöt ekkert sérstaklega gott.
3. Ragga Gísla hefur alltaf farið aðeins í taugarnar á mér, líka Katrín Jakobsdóttir.
4. Ég er ótrúlega forvitin manneskja. Bara tilhugsunin um að það sé eitthvað að gerast einhversstaðar sem ég veit ekki um er hræðileg!! Þess vegna stenst ég ekki að kaupa Séð og heyrt eða DV.
5. Ég gæti aldrei í lífinu farið í peysu eða bol án þess að vera í hlírabol innan undir. Ég er ALLTAF í hlírabol, undantekningalaust. Ég á líka svona 20 stykki af þeim.
6. Ég þoli ekki hvað ég er með langa putta.
7. Ég hugsa um það nánast á hverjum degi hvað ég kvíði fyrir þegar annað hvort amma eða afi deyja. Þau eru orðin svo gömul.
8. Ég þoli ekki að það sé sagt "athyglisvert" Ég meina þetta er vert "athygli" ekki "athyglis".
9. Ég lærði ekki að synda fyrr en ég var 10 ára og kann enn þann dag í dag bara að synda bringusund, er því frekar vatnshrædd.
10. Eitt af því skemmtilegasta sem ég geri er að þvo þvott, myndi frekar vilja eyða heilu laugardagskvöldi í það en að djamma.
11. Mig dreymir eitthvað á hverri einustu nóttu, stundum er það frekar þreytandi. Vakna stundum oft á nóttu við nýjan og nýjan draum.
12. Ég er rosalega dómhörð og fordómafull. Sorrý, ég bara er það.
13. Ég býst stöðugt við því versta, hef alltaf gert það. Er alltaf viðbúin því að fólk hætti að tala við mig, deyi, ég missi vinnuna, Rikki finni sér aðra konu, eitthvað af okkur veikist alvarlega eða eitthvað þvíumlíkt. Kannski vegna þess að ég er vatnsberi.
Ég gæti örugglega komið með svona 30 stykki í viðbót en geymi það til betri tíma. Ég á víst að klukka annað fólk en mér sýnist allir í kringum mig hafa þegar verið klukkaðir. Ég ætla þó að prófa að klukka Írisi, Ester, Jóhönnu, Kristínu B. og Birgittu.

Bloggarar
Litlir bloggarar