Jæja þá...
Er komin heim úr Spánarferðinni sem heppnaðist annars ágætlega. Við þurftum að kaupa auka ferðatösku undir allt sem við keyptum!! Ég missti mig í H&M og keypti heilan helling á stelpurnar og líka boli og nærföt á mig. Við Rikki keyptum okkur bæði slatta af fötum, hann keypti sér buxur, peysur, úlpu, boli og fleira. Ég keypti mér buxur, sex boli takk fyrir, nærföt, veski og GEGGJUÐ kúrekastígvél. Ég sem er nánast alltaf í strigaskóm er gjörsamlega ástfangin af þessum stígvélum, þau kostuðu milli fimm og sex þúsund íslenskar sem er bara hlægilegt!
Ég er búin að vera frekar þreytt síðan ég kom heim. Var í fríi í dag og notaði daginn mest í að SOFA! Enda vakti ég í sólarhring í gær, var orðin alveg búin! Svo er það bara vinnan á morgun og svo er komin helgi. Það er víst partí uppi í vinnu á laugardagskvöldið sem maður kíkir nú væntanlega í, nota öll tækifæri til að vera í nýju stígvélunum sko ;)
Blogga meira seinna.

Bloggarar
Litlir bloggarar