Been there... broke that!

miðvikudagur, september 07, 2005

Úff

Var ekkert smá dugleg í morgun, var mætt í ræktina kl. 6:30 takk fyrir kærlega! Var svo bara þvílíkt fersk í morgun, ekkert smá frískandi að byrja daginn svona... en nú er ég farin að geispa svo mikið að ég get ekkert gert hérna í vinnunni. Ég bara geispa og geispa og geisputárin leka niður kinnarnar... úff, vona að ég nái að vaka út daginn, bara tveir tímar eftir reyndar.

Í dag kemur elsku Birgitta systir mín heim frá Spáni, hún er búin að vera í heilar fjórar vikur!! Hlakka rosalega til að hitta hana... svo er auðvitað bara vika í okkar spánarferð... jíbbíkóla :)


Gestir síðan 10. nóv. 2005:

Hit Counter
Website Hit Counters