Arrg
Ég ætlaði aldrei geta vaknað í morgun. Drattaðist fram úr kl. 7:30 og fór í mitt daglega bað. Vakti Andreu svo sem byrjaði strax að gráta yfir því að vera að fara í leikskólann. Það mátti ekki klæða hana eða greiða henni. Ég þurfti að gera hana tilbúna við eldhúsborðið þar sem hún var að borða cheerios, það kom nefnilega ekki til greina að borða í leikskólanum. Eftir miiiiikið vesen náðum við að komast út... alveg á seinustu stundu. Fór niður í bílageymslu (hvar ég geymi bílinn alltaf núna) og brunaði af stað, keyrði utan í vegg svo það kom myndarleg rispa á farþegahliðina á bílnum!!!
Dagurinn byrjaði sem sagt alveg yndislega......
Dagurinn byrjaði sem sagt alveg yndislega......
Bloggarar
Litlir bloggarar