Wedding Crashers
Við Rikki fórum á Wedding Crashers í gærkvöldi. Hún er frekar löng en ég mæli samt með henni. Vince Vaughn og Owen Wilson eru náttúrulega bara snillingar og ég hló mikið. Vegna lengdarinnar er þetta samt frekar svona mynd sem ég hefði viljað glápa á í sófanum heima.
Eftir þennan dag tekur við fjögurra daga helgi hjá mér. Ekki algjört frí reyndar, er að fara með Andreu Ósk í nefkirtlatöku á mánudaginn og verð með henni heima þann dag og daginn eftir. Úff, ég kvíði svo fyrir. Það versta sem ég hef upplifað er að sjá litlu dúlluna svæfða, það er eitthvað svo óhugnalegt. Vonandi líður henni betur eftir þetta.
Mig langar að leigja góða mynd og borða popp og nammi í kvöld. Hvaða mynd mælið þið með sem er komin á leigurnar??

Bloggarar
Litlir bloggarar