Vöðvabúntið
Fór í gær og keypti mér árskort í ræktina. Já nú á að taka á því og stækka á sér afturendann ;) Mætti í gær með Írisi og púlaði í klukkutíma í tækjunum. Hef hugsað mér að fara á þriðjudögum, fimmtudögum og sunnudögum... á kvöldin þegar prinsessan er sofnuð. Maja og fleiri "olgur" ætla að fara í Body pump á mánudögum og miðvikudögum og býst ég við að ég skelli mér í eitt og eitt skipti með þeim líka, maður verður orðinn rosa fit um áramótin!! ÉG SKAL!
Hafið þið séð myndina Hotel Rwanda? Hún kemur á leigurnar á morgun og við Rikki erum búin að ákveða að leigja hana. Íris sagði mér frá þessari mynd um daginn og ég sver það ég þurfti bara að stoppa hana af því ég gat ekki hlustað á meira. Býst við því að þurfa að hafa handklæði hjá mér þegar við horfum á hana!!

Bloggarar
Litlir bloggarar