Vikan búin
Úff, þetta var ekki auðveld vika. Það er ekkert smá sem maður er fljótur að venjast því að vera í fríi, það liggur við að ég hætti bara á pillunni og eignist annað barn til að komast í smá fæðingarorlof. Það er samt spurning hvort yrði erfiðara, vinnan eða orlofið?!? Nei, ég bíð með barneignir í nokkra mánuði eða nokkur ár, kemur í ljós. Svo líkar mér líka bara of vel í vinnunni til að taka mér pásu. Vá, ég tala í hringi!
Í kvöld ætlum við Júlía að bregða okkur á bingó í Vinabæ. Ég ætlast til þess að þið sendið mér góða strauma. Þegar ég var yngri vann ég einu sinni 100 þúsund og einu sinni 50 þúsund. Ég fór svo nokkrum sinnum þegar við Rikki vorum nýbyrjuð saman en þá vann ég aldrei neitt, ekki einu sinni hundraðkall. Ég vona að Júlía sé fínn lukkugripur, svo ætlar Hafliði að kíkja á okkur eftir vinnu... hann er gamall bingófíkill. Ég held að ég gæti aldrei orðið spilafíkill, ég er einfaldlega alltof nísk til þess. Mér finnst fínt að skella mér í bingó einu sinni á ári en that´s it. Ég kann ekki einu sinni á spilakassa, það er kannski bara gott. Held að það sé sjaldgæft að fólk komi út í plús í svona apparötum.
Á að skella sér í Gay Pride gönguna á morgun? Ég held að hún byrji kl. 15. Það er spáð þessu fína veðri þannig að það væri gaman að skella sér. Ég veit samt ekki hvernig Andreu minni myndi lítast á það því hún er svo rosalega hrædd við læti. Hún er alveg búin að tilkynna okkur það að hún ætli aldrei aftur í tívolíið því það eru svo mikil læti þar. Við sjáum til á morgun.
Hafið þið einhverja reynslu af Herbalife? Ég er að fara að fá mér mánaðarskammt af einhverju gumsi sem ég á að drekka eitt glas af eftir hverja máltíð, það á að hjálpa mér að þyngjast. Ef þetta virkar eitthvað þá held ég áfram. Svo ætlum við Júlía í ræktina aftur í haust þannig að maður hreyfir sig nú með í leiðinni og safnar ekki bara spiki. Æ, ég vona að þetta gangi upp, það hefur allavega ekki virkað fyrir mig að éta eins og svín hingað til, mig langar bara að komast í kjörþyngd og þyngjast um 6-7 kíló. Ég er 163 cm og 46 kíló, veit einhver hvað kjörþyngdin mín ætti að vera?
Jæja, vona að þið hafið nennt að lesa þetta allt, er með málæði í dag!

Bloggarar
Litlir bloggarar