Been there... broke that!

þriðjudagur, ágúst 02, 2005

*mygl*

Jæja, þá er ég mætt til vinnu og ég er EKKI tilbúin! Ég hefði þurft svona viku í viðbót, þá hefði ég verið sátt. Það eru framkvæmdir í gangi á hæðinni minni þannig að það er búið að troða okkur stelpunum upp á 4 hæð inn í pínulítið herbergi. Ég verð reyndar að viðurkenna að mér líst vel á það, það er svo mikil þögn og rólegheit hérna ... ekki einu sinni sími til að trufla mann!! Við verðum sem sagt hérna eitthvað fram í næstu viku.

Í gær var ég fullorðins. Ég labbaði í gegnum bílageymsluna alveg sjálf!! Ég þarf sem sagt að labba þar í gegn til að komast í geymsluna okkar. Ég hef aldrei gert það áður, hef alltaf sent Rikka ef mig hefur vantað eitthvað! Jæja, í gær þurfti ég að leita að dóti sem ég treysti honum ekki til að finna sjálfur þannig að ég þurfti að skella mér.... og það ALEIN! Ég var hrædd, ég neita því ekki en þetta tókst og í dag finnst mér ég vera fullorðins, þetta er allt að koma hjá mér! Jájá, hlæið þið bara, þið hafið kannski ekki séð neinar bíómyndir þar sem fólk er myrt í bílageymslum?!?!*hrollur*!!!


Gestir síðan 10. nóv. 2005:

Hit Counter
Website Hit Counters