Been there... broke that!

mánudagur, ágúst 22, 2005

Mæli með...

Mæli með Hotel Rwanda. Horfði á hana um helgina og þetta er rosaleg mynd. Ótrúlegt en satt þá vældi ég ekkert yfir henni, kannski af því að ég var svo vel undirbúin. En þetta er mynd sem fær mann virkilega til að hugsa, mynd sem allir ættu að sjá.

Ég mæli líka með nýja bleika Extra... mmm... með jarðaberjabragði, geðveikur!!

Já... og smá fréttir. Við erum að fara að fá okkur hund. I kid you not. Erum búin að velja hann. Svartur hreinræktaður Labrador, rosa fallegur. Hann ætlar að heita Nökkvi. Hann fæddist 5. júlí en við fáum hann í september. Þetta verður skrítið en örugglega frábært.


Gestir síðan 10. nóv. 2005:

Hit Counter
Website Hit Counters