Been there... broke that!

sunnudagur, ágúst 28, 2005

Jæja jæja

Já föstudagurinn var sem sagt ekki sá besti....

Skellti mér í gær með Andreu Ósk á Kalla á þakinu. Við skemmtum okkur báðar alveg konunglega! Kíkti svo í gærkvöldi með Írisi og Guggu á kaffihús, drakk of mikið kaffi og ætlaði aldrei að sofna í nótt. Vaknaði þar af leiðandi þreyyyyttt í morgun.

Í kvöld er það svo ræktin ræktin ræktin .... og meira að segja kannski í fyrrmálið líka með Maju og co. Á eftir að athuga hvort Rikki þurfi nokkuð að fara fyrr í vinnuna því þetta er svo tæpt. Held samt að svona morgun-pump sé góð leið til að vakna.

Framundan í dag er Vöfflubakstur, vöffluát og Nágrannamaraþon. Eitthvað var búið að tala um að skella sér í berjamó en það á eftir að koma í ljós...


Gestir síðan 10. nóv. 2005:

Hit Counter
Website Hit Counters