Been there... broke that!

þriðjudagur, ágúst 23, 2005

Heilsukoddar

Við Rikki fórum í Betra Bak eftir vinnu í gær og splæstum á okkur sitthvorum heilsukoddanum. Við sváfum með þá í nótt og mmm þvílíkur munur, við sváfum ekkert smá vel!! Fyrst að við vorum þarna á annað borð þá splæstum við líka í rúmgafl :/ Æ, hann var svo flottur og góður að við skelltum okkur á hann, fáum hann sendan í dag....

Í kvöld er það svo bara ræktin. Ég dýrka að það sé sjónvarp á hverju tæki þarna í Sporthúsinu. Ég fer þarna á þriðjudögum, fimmtudögum og sunnudögum kl. 20:30. Á þriðjudögum horfi ég á Fear Factor, fimmtudögum á The Apprentice og á sunnudögum eitthvað á Cirkus eða Skjá einum... man það ekki. Það er alltaf hægt að glápa á eitthvað og þá gleymir maður því að maður sé að púla, mér finnst þetta þvílíkur munur.


Gestir síðan 10. nóv. 2005:

Hit Counter
Website Hit Counters