Been there... broke that!

þriðjudagur, ágúst 09, 2005

Fluguárás og stórslys

Sunnudagskvöldið var mjög furðulegt. Ég var með opið út á svalir. Ég er með einn stóran gólflampa og annan lítinn lampa við hliðina á sjónvarpinu og var kveikt á þeim báðum, annað í íbúðinni var slökkt fyrir utan lítið ljós í eldhúsinu. Ég er að tala við Hildi í símann þegar mér verður litið upp í hornið fyrir ofan gólflampann og mér BRÁ!!! Veggurinn var þakinn MÝFLUGUM og loftið líka, ég giska á að þær hafi veriið ca. 200 talsins! Ég kíkti fyrir ofan litla lampann og jújú þar voru að minnsta kosti jafnmargar ... allur veggurinn þakinn og líka loftið fyrir ofan. Ég leit inn í eldhús og þar var sama sagan. Loftið var morandi í mýflugum!!! Guð minn góður, ég hélt að ég myndi ekki lifa þetta af. Rikki vildi meina að það væri ekkert hægt að gera í þessu, þær myndi bara drepast! Ég var EKKI að fara að sofa með ca. 700 mýflugur í búðinni minni þannig að ég brá á það ráð að slökkva (láta Rikka slökkva) öll ljós í íbúðinni, hafa kveikt ljósið úti á svölum og hafa svalahurðina opna. Við lokuðum okkur svo inni í herbergi. Einhverjum tíma síðar sendi ég Rikka fram að kanna málið og viti menn, það voru kannski svona þrjár eftir!! Ég passa mig hér eftir að hafa ekki kveikt á lömpunum og opið út á svalir þegar það er orðið dimmt úti, með því er ég víst bara að bjóða mýflugunum í heimsókn!! :/

Í gærkvöldi var Rikki að festa nýja sjónvarpið okkar upp... eða var reyndar búinn að því og var að vesenast eitthvað í snúrunum. Hann var með hníf og var að skera eitthvað þegar ég sé hann allt í einu hlaupa inn á klósett. Við skulum orða það þannig að það var ekki mikið mál fyrir mig að fylgja blóðslóðinni á eftir honum :/ Þar stóð hann yfir vaskinum sem var orðinn nánast fullur af blóði og kom í ljós að vísifingurinn hafði næstum því farið af!! Hann rýkur upp á slysó þar sem voru saumuð hvorki meira né minna en sjö spor í puttann!

Þessi helgi var sem sagt ekki alveg sú besta....


Gestir síðan 10. nóv. 2005:

Hit Counter
Website Hit Counters