Veikindi
Já, mjög sniðugt að vera veikur í sumarfríinu sínu. Er með hálsbólgu, smá beinverki og viskírödd. Ég veit ekki hvort ég er með hita, ef svo er þá er hann a.m.k. ekki mikill. Mig langaði í tívolíið í dag með Andreu, Hildi og Sævari en býst nú við því að hanga heima til að ná þessu úr mér. Veðrið er heldur ekkert að draga mig út....
Annað kvöld ætlum við Hildur að eiga rómantíska kvöldstund saman. Hún á afmæli eftir viku og ætlum við að halda smá upp á það á morgun. Ég ætla að bjóða henni út að borða og svo á Bítlið í Lofkastalanum. Já, ég veit ég er búin að fara áður en það var frítt og þetta er frábær sýning sem ég get alveg hugsað mér að sjá tvisvar. Það er allavega eins gott að vera búin að ná úr sér pestinni að mestu fyrir annað kvöld.
Í gær var Rikki búinn að vera reyklaus í eitt ár! Húrra húrra húrra! Ég ákvað að gefa honum eitthvað fallegt í tilefni dagsins, en svo gleymdi ég því.

Bloggarar
Litlir bloggarar