Been there... broke that!

þriðjudagur, júlí 12, 2005

Skyldublogg

Já, ég veit eiginlega ekkert hvað ég á að segja en finnst ég verða að blogga. Ég er líka búin að vanrækja síðuna hennar Andreu í nokkra daga, fer nú að bæta úr þessu.

Planið á föstudaginn breyttist. Það var hringt í mig úr Loftkastalanum kl. 15 og mér sagt að sýningin daginn eftir myndi falla niður. Við ákváðum því að skella okkur bara strax um kvöldið. Það var auðvitað frábært eins og +eg bjóst við. Eina slæma við þetta var slappleikinn í mér, var ennþá lasin og þvílíkt hás.. gekk t.d. ekkert að syngja með á Bítlinu eða flauta og garga. Það heyrðist bara svona smá ískur í mér úr horninu. Við kíktum á Ölstofuna en ég fór snemma heim.

Ég er komin með júllur. Fór í dag og keypti mér gelpúða til að setja í brjóstahaldarann þannig að nú getur maður bara smellt túttunum í! Nei, nei þetta er ekki mikið, sést varla en mér finnst þetta geggjað. Er ég kannski að deila of miklu hér? Ég keypti mér líka peysu, bol, skó, tvo hlíraboli, brjóstahaldara og eitthvað fleira. Þetta sumarfrí á eftir að setja mig á hausinn. Útsölur eru verkfæri djöfulsins!


Gestir síðan 10. nóv. 2005:

Hit Counter
Website Hit Counters