Skyldublogg 2
Maður er nú ekki mikið fyrir að blogga þegar veðrið er eins og það er búið að vera, engin smá blíða! Kominn tími til enda búin að vera rigning síðan ég fór í frí. Ég fer svo að vinna aftur næsta þriðjudag.... mér finnst ég vera búin að vera í fríi í mesta lagi 2 vikur! Tíminn líður hratt.....
Mest lítið að frétta annars, erum að hugsa um að kíkja í Nauthólsvíkina í dag ef það er ekki of hvasst. Þarf líka að fara í Hans Petersen með 594 myndir í framköllun. Var sem sagt að fara yfir allar myndirnar sem ég hef tekið á digital vélina mína. Ég hef aldrei framkallað þannig að ég þurfti að velja úr... þetta voru ca. 5000 myndir þannig að 594 myndir er kannski ekki svo mikið. Þetta kostar ca. 17 þúsund kjell... hvorki meira né minna. Ætla að muna að gera þetta í pörtum hér eftir :/
Jæja, Neighbours kalla.....

Bloggarar
Litlir bloggarar