Fyrsti í sumarfríi..
Ég held að ég eigi eftir að vera löt við að blogga í sumarfríinu, ég finn það bara á mér. En í dag var sem sagt fyrsti sumarfrísdagurinn minn svona formlega og eyddi ég honum í að láta draga úr mér tönn já takk kærlega fyrir! Ég var deyfð um það bil tíu sinnum, auðvitað var ég svo heppin að vera lengi að deyfast. Eftir þessi ósköp fór ég til Möggu (konunnar hans Stjána bróður hans Rikka) til að sækja barnið mitt en endaði svo með því að stoppa þar í nokkra klukkutíma. Ég er búin að vera vel dópuð í dag þannig að ég finn ekki til, allavega ekki ennþá. Það versta við þetta allt saman er að ég má ekki borða, að fasta er ekki mín sterkasta hlið!
Jæja, best að halda áfram með marengsinn. Er að baka fyrir afmæli ömmu hans Rikka sem er á morgun. Vildi bara láta vita af mér, bæ í bili.
Jæja, best að halda áfram með marengsinn. Er að baka fyrir afmæli ömmu hans Rikka sem er á morgun. Vildi bara láta vita af mér, bæ í bili.
Bloggarar
Litlir bloggarar