BESTA
Ég er búin að vera á leiðinni í BESTA á Suðurlandsbraut í marga mánuði til að kaupa eitt og annað. Hefur t.d. langað til að kaupa sótthreinsi til að hella ofan í t.d. klósett og niðurföll. Jæja, ég dreif mig loksins í dag og keypti ýmislegt skal ég segja ykkur. Ég byrjaði að sjálfsögðu á því að kaupa þennan sótthreinsi. Svo bara var svo margt sniðugt þarna að ég réði ekki við mig. Ég splæsti í allskonar efni t.d á gólfin, vaskana, eldavélina, stálhreinsi og fleira. Svo skellti ég mér á nýtt skúringasett. Maður kaupir sem sagt stöngina og svo moppur á, annars vegar til að rykmoppa með og hins vegar til að skúra með. Ég er búin að prófa þetta ALLT SAMAN og þetta er SNILLD! Það glansar allt hér!! Ég held að þessi búð sé nýja uppáhaldsbúðin mín!
Í dag fór ég með stelpurnar á róló eftir hádegi enda hafa þær gott af því að komast út að leika sér aðeins. Rikki var í fríi eftir hádegi og höfðum við það rosalega gott. Skelltum okkur út að borða og svo á smá flakk. Náðum meðal annars í nýju trúlofunarhringana okkar, kominn tími á það. Minn gamli týndist fyrir tæpu ári og hans gamli er löngu orðinn alltof lítill þannig að hann hefur ekki gengið með hann í marga mánuði. Ég er ekkert smá ánægð með þetta, finnst eitthvað búið að vanta á puttann á mér alltof lengi.

Bloggarar
Litlir bloggarar