Been there... broke that!

miðvikudagur, júní 22, 2005

Zzzz Zzzz Zzzz

Ég er hætt að sofa á nóttunni. Ég! Ég sem gat ekki verið lárétt lengur en í 3 mínútur og þá var ég sofnuð. Ég er líka búin að komast að því að það að vera andvaka er eitt af því allra leiðinlegasta sem ég lendi í. Oj! Ég reyni að fara fram í sófa og horfa á sjónvarpið en ekkert gengur. Myndin klárast og ég ligg enn. Þá færi ég mig aftur inn í rúm og enda með því að sofna 1-2 tímum seinna þegar ég er búin að pirra mig vel og vandlega á hrotunum í Rikka. Ó, mig auma. Ég þarf greinilega að komast í sumarfrí... bara 8 vinnudagar eftir að deginum í dag meðtöldum.

Ég er búin að hnerra svona ca. 16 sinnum síðan ég vaknaði. I´m loving it. Ég veit fátt skemmtilegra en að hnerra.


Gestir síðan 10. nóv. 2005:

Hit Counter
Website Hit Counters