Sturta eða bað?
Nú fer ég í bað á hverjum morgni fyrir vinnu. Þegar ég segi fólki frá því (sem ég geri oft, ég tala iðulega um baðferðir mínar) þá hváir fólk og segir BAÐ??? Ekki sturtu?? Það skilur ekki hvernig í nenni að standa í því að láta renna í bað á hverjum morgni, liggja í baði o.s.frv. Ég get nú bara með engu móti skilið hvernig fólk nennir að STANDA í sturtu nývaknað og úldið! Ég fer inn á baðherbergi um leið og ég vakna og byrja að láta renna í baðið, bursta í mér tennurnar og sest svo ofan í bað þó það sé ekki orðið fullt. Á meðan það er ennþá að fyllast sit ég stjörf og glápi út í loftið, eiginlega svona eins og að sofa með opin augun bara. Þegar baðkarið er orðið fullt þá hristi ég af mér slenið og fer á fullt við að þvo mér. Ég hef fötin tilbúin inni á baði þannig að þegar ég er búin að þurrka mér þá fer ég beint í þau og VOLA... reddí tú gó! Þetta tekur í mesta lagi 12-15 mínútur. Hmm, ég hef ekki hugmynd um af hverju ég er að blogga um þetta! Ég held að það sé augljóst að ég er komin í sumarfíling og er því ekki í vinnustuði. Blogga bara allan daginn.
Bloggarar
Litlir bloggarar