Been there... broke that!

fimmtudagur, júní 16, 2005

PLU

Ég er búin að vera á leiðinni að blogga í allan dag en hef alltaf hætt við og farið að gera eitthvað annað. Ástæðan er einföld, ég hef nákvæmlega ekkert að segja. En af því að ég er í svo dásamlegu skapi skal ég gefa ykkur lista yfir nokkra hluti sem ég þoli ekki.

ÉG ÞOLI EKKI:

* að liggja andvaka
* að vera föst í umferð
* hrotur
* þunnt kaffi
* að skipta á rúmunum
* tillitsleysi
* fýlupúka
* alltof háa tónlist
* reykelsi
* stafsetningarvillur
* skítugt fólk

Takk fyrir kærlega, gott að koma þessu frá sér. Kannski einhverntímann þegar liggur vel á mér get ég komið inn með lista yfir hluti sem mér líkar vel, er hrædd við og svo framvegis. Það er frábær hugmynd að gera það þegar maður hefur ekkert að til að blogga um.


Gestir síðan 10. nóv. 2005:

Hit Counter
Website Hit Counters