Ónæði
Eins og margir muna kannski þá er ég búin að eiga erfitt með að sofna á kvöldin síðustu tvær vikurnar. Mér tókst í fyrrakvöld að sofna FYRIR miðnætti, i kid you not! Ég vaknaði líka endurnærð í gærmorgun! Jæja, í gærkvöldi var kl. ca. miðnætti og ég skreið í bælið. Þetta var alveg kjörið, Rikki var nýfarinn inn í rúm þannig að hrotupartýið var ekki byrjað og ég var vel syfjuð þannig að ég bjóst við því að sofna á örfáum mínútum. Jújú, ég lagðist niður og þegar ég er aaaalveg að sofna... er eiginlega sofnuð.... heyri ég píp í símanum mínum. Ég kíki og sé að það er verið að hringja í mig úr einhverju númeri sem ég þekki ekki. Ég þorði nú ekki öðru en að svara ef lífið skyldi liggja við hjá einhverjum. Svona hljóðaði það símtal:
Ég: Halló.
Stelpa: Hver er þetta?
Ég: Kristín heiti ég.
Stelpa: Átt þú þennan síma?
Ég: Já.
Stelpa: Ok, sorrý vitlaust númer.
Ég: Ok, bless.
Ég lagðist aftur upp í rúm. Hrotupartýið hófst. Ég sofnaði tveimur tímum síðar.
Ég: Halló.
Stelpa: Hver er þetta?
Ég: Kristín heiti ég.
Stelpa: Átt þú þennan síma?
Ég: Já.
Stelpa: Ok, sorrý vitlaust númer.
Ég: Ok, bless.
Ég lagðist aftur upp í rúm. Hrotupartýið hófst. Ég sofnaði tveimur tímum síðar.
Bloggarar
Litlir bloggarar