Been there... broke that!

fimmtudagur, júní 30, 2005

Léleg vinnubrögð.

Í október á síðasta ári keypti ég mér 6 mánaða kort í Sporthúsinu og lét draga það af kreditkortinu mínu mánaðarlega, 4.500 kr. á mánuði. Ég tók eftir því að þau væru ennþá að draga af mér en ég hélt að síðasta greiðslan ætti að vera í apríl. Ég hringdi á skrifstofuna þeirra og fékk þau svör að þau hættu ekki að draga af mér fyrr en ég segði kortinu upp. SEGÐI KORTINU UPP? Ég keypti 6 MÁNAÐA kort og ætlast auðvitað til þess að það gildi bara í þann tíma. Ég er búin að standa í þeirri meiningu í tvo mánuði að ég ætti útrunnið kort. Auðvitað bjóst ég við því að kortið myndi sjálfkrafa renna út að samningstímanum liðinum. CRAP! Ok, það eru ekki peningarnir sem ég er brjáluð yfir, ég dey ekki þó það hafi verið dregnar af mér auka 9 þúsund krónur. Það er þessi vinnubrögð sem ég er ósátt við. Enginn sagði mér að þetta væri svona, ég fékk enga tilkynningu um að kortið væri að renna út og ég þyrfti að segja því upp ef ég vildi hætta að greiða af því. Ég er búin að senda konunni póst sem sér um þetta. Hún er í sumarfríi til 12. júlí en hlýtur að svara mér þá. Ég sagði sem sagt kortinu UPP í þessum pósti og spurði líka um möguleikann á endurgreiðslu. Ég held að ég hafi algjörlega komið vanþóknun minni á framfæri! Í alvöru, er þetta ekki út í hött?


Gestir síðan 10. nóv. 2005:

Hit Counter
Website Hit Counters