Leti og Bítl.
Vá hvað ég er löt. Ég er að vinna út þessa viku en því miður þá er heilinn minn kominn í sumarfrí þannig að ég er nánast óvinnuhæf. Ég stari bara út í loftið og man ekkert hvað ég var að gera eða af hverju ég er hérna, þetta er rosalegt. Ég held að batteríin í mér séu bara að klárast.
Ég skellti mér á "tónleikinn" BÍTL á laugardagskvöldið með Júlíu. Þetta var ekkert smá skemmtileg sýning, eins og ég bjóst við. Eftir sýninguna kíktum við á 101 að hitta systur hennar Júlíu, þar óverdósaði ég á frægu fólki, fór bara að svima! Við röltum svo hring á Prikinu og hittum nákvæmlega ekki neinn, kíktum þá á Rósenberg í smá spjall áður en ég hélt heim á leið. Júlía skellti sér aftur í fræga fólkið og djammaði með þeim það sem eftir var nætur og skemmti sér víst konunglega.
Næsta föstudagskvöld ætlar mín á smá djamm. Það verður grillpartý hjá einni hérna í vinnunni og eftir það fer ég í afmæli til Jennýjar en hún verður 27 ára næsta mánudag. Þetta verður fín leið til að halda upp á að vera byrjuð í sumarfríi.... kannski maður verði bara lengur en til kl. 2 í tilefni af því, hver veit.

Bloggarar
Litlir bloggarar