Helgin nálgast.
Já hún nálgast blessunin og er svo sannarlega vel þegin. Ég er búin að þjást af einhverri ofþreytu síðustu daga. Fáránlegt samt að ég er geispandi allan liðlangan daginn og get varla haldið augunum opnum en svo þegar ég leggst upp í rúm um kvöldið get með engu móti sofnað. Það þykir mér óþolandi! Um helgina ætla ég samt að vera hress og dugleg. Í kvöld kíkjum við í smá heimsókn til tengdó og eftir það er ég að hugsa um að kíkja í kaffi með Júlíu. Í hádeginu á morgun fer ég með Andreu Ósk í íþróttaskólann, vonandi verður gott veður... þá kíkir maður á eitthvað flakk líka. Á sunnudaginn langar mig í heimsókn til pabba, er að hugsa um að plata hann til að bjóða okkur í grill eða eitthvað gotterí.
Ég er svo hamingjusöm að The Apprentice er byrjað aftur, þessir þættir eru í alvörunni geggjaðir! Veit um svo marga sem hafa aldrei séð þá sem eru búnir að stimpla þá ömurlega af því að Donald Trump er ömurlegur. Málið er samt að hann er svo yndislega hallærislegur að maður hlær bara að því.. en þættirnir eru frábærir engu að síður. Mér finnst töff hugmynd að hafa Book-smarts og Street-smarts og vá hvað ég var hissa þegar hann sagði að þessir ólærðu þénuðu þrefalt meira en hitt liðið, enda urðu þessi lærðu freeekar fúl, skiljanlega! Er ekki byrjuð að halda með neinum ennþá en var sátt við að Street-smarts unnu í gær, þau gerðu þetta miklu betur!
Að lokum vil ég segja: Hildur mín láttu þér batna og Silja, til hamingju með afmælið :)

Bloggarar
Litlir bloggarar