Been there... broke that!

mánudagur, júní 06, 2005

Frábær helgi

Vá, hvað þessi helgi er búin að vera fín. Vorum í mat hjá tengdó á föstudaginn, flökkuðum í sólinni á laugardaginn og fórum svo með pabba út að borða á sunnudagskvöldið. Þetta er eiginlega bara ein skemmtilegasta helgi sem við höfum átt í langan tíma.

Ég fór svo í kaffi með Júlíu á föstudagskvöldið. Við fórum á Hressó en færðum okkur yfir á Rósenberg þegar lætin voru orðin of mikil. Það var ekkert smá fínt þar, fáir þar inni og voða kósí bara. Þar meira að segja breyttist kaffið mitt í hvítvín ;) Hildur kíkti á okkur í smástund á leið sinni í partí og svo skelltum við Júlía okkur á Prikið því við vissum að Hallur og einhverjir fleiri væru þar. Já... á Prikinu held ég að ég hafi hitt um það bil ALLA sem ég hef nokkurn tímann þekkt á lífsleiðinni. Haha, þetta var ótrúlegt. Skemmtilegast fannst mér að hitta Hröbbu en hún va með okkur í Langholtsskóla en svo hef ég varla séð hana síðan í 10. bekk, enda er hún búin að vera mest úti á Ítalíu að læra ljósmyndun. Við skiptumst á símanúmerum og stefnum á kaffihúsaferð sem allra fyrst. Gaman gaman!! Eftir svona kvöld hugsa ég alltaf að ég verði að vera duglegri að djamma...

Að lokum vil ég óska henni elsku systur minni til hamingju með 13 ára afmælið í dag :)

Tók þetta próf áðan, ég er eðlilegri en ég hélt.

You Are 45% Normal
(Somewhat Normal)



While some of your behavior is quite normal...
Other things you do are downright strange
You've got a little of your freak going on
But you mostly keep your weirdness to yourself


Gestir síðan 10. nóv. 2005:

Hit Counter
Website Hit Counters