Draumablogg?
Ég gæti gert þetta að bloggsíðu um drauma og skrifað hér á hverjum degi. En ég ætla ekki að gera það. Í nótt dreymdi mig samt að ég væri að hringja í bankana sem við Rikki erum í viðskiptum við til að athuga stöður á reikningunum okkar og komst þá að því að hann var búinn að taka allt útaf þeim, eða svona nánast allt. Hann gat ekki gefið mér neinar góðar útskýringar á því þannig að ég var reið. Mig dreymdi margt fleira sem ég mundi þegar ég vaknaði en man ekki lengur. Mig hefur aldrei dreymt jafnoft og mikið eins og síðan ég flutti í Lækjasmárann.
Í dag var stefnt á að fara í fjölskylduferð til Viðeyjar með vinnunni. Það er ekki alveg víst að við komumst því hún Andrea Ósk vaknaði í nótt grátandi vegna verkja í eyrunum. Þetta er orðið alveg ótrúlegt, þetta er fjórða eyrnabólgan á tveimur mánuðum. Hún er búin að fara tvisvar á pensilín á þeim tíma þannig að ég myndi nú ekki vilja setja hana á annan kúr strax. Æ, litla dúllan hvað þetta hlýtur að vera vont fyrir hana. Hún fór í leikskólann í morgun því hún var hitalaus en Rikki er að sækja hana núna. Við sjáum til hvernig hún verður á eftir hvort við förum eða ekki. Hún fer svo til eyrnasérfræðings í byrjun júlí, þá finnst mér líklegt að það verði látin í hana rör.... aftur!
Af íbúðamálum er ekkert nýtt að frétta, þetta kemst vonandi allt saman á hreint eftir helgi. Ohh ég vona að þetta gangi allt saman upp, krossið puttana fyrir okkur :)

Bloggarar
Litlir bloggarar