Been there... broke that!

sunnudagur, júní 19, 2005

12 dagar

Þá eru ekki nema 12 dagar þangað til ég fer í sumarfrí en reyndar bara 10 vinnudagar. Ég er farin að hlakka ekkert smá til, þó mér finnist ég reyndar vera nýbyrjuð þarna þá var ég náttúrulega að vinna í KB banka áður þannig að maður er alveg farinn að þrá smá frí. Rikki tekur líklegast ekkert frí, allavega ekkert ákveðið en það kemur bara í ljós. Ég væri alveg til í að fara í eitthvað smá ferðalag, þó það væri ekki nema eitthvað lítið.

Ég er alveg búin að þrælskipuleggja fyrstu vikuna í fríi. Ég ætla að gera allskonar hluti sem ég er búin að vera á leiðinni að gera lengi. T.d. að fara í krabbameinsskoðun og til húðsjúkdómalæknis til að athuga upphleypta fæðingablettinn sem byrjaði að myndast á öxlinni á mér fyrir ca. ári. Ég á líka pantaðan tíma hjá tannlækni í þessari viku og Andrea Ósk fer líka í fyrstu tannlæknaskoðunina sína. Gaman að sjá hvernig hún bregst við því :/ Ef hún er eitthvað eins og mamma sín þá verður hún ekki ánægð!

Birgitta systir gisti hjá okkur í nótt þannig að við Rikki nýttum tækifærið í gærkvöldið til að kíkja aðeins út. Við fórum í góðan bíltúr og göngutúr uppi á Vatnsenda og enduðum svo í smá kvöldkaffi hjá tengdó, þvílíkt næs bara. Í dag verður mest legið í leti, enda sunnudagar til þess gerðir að mínu mati.


Gestir síðan 10. nóv. 2005:

Hit Counter
Website Hit Counters