Zzzz Zzzz
Ohh ég er búin að vera svo lengi að sofna á kvöldin í u.þ.b. eina viku. Ég hef yfirleitt verið þannig að ég sofna nánast áður en ég leggst á koddann. Mér líkaði það betur, þetta er ekkert smá leiðinlegt. T.d. í gærkvöldi var ég komin inn í rúm rétt fyrir miðnætti... lokaði augunum.. reyndi að sofna en allt kom fyrir ekki. Ég var búin að reyna ýmislegt, telja kindur, anda í takt við hroturnar í Rikka... maður hefði haldið að ég myndi sofna úr leiðindum við það en nei!! Ég man síðast eftir mér kl. 4 enda er ég mygla.is í dag. Kannski þetta verði til þess að ég sofni snemma í kvöld.
Já... ég fór á Nasa á laugardagskvöldið. Byrjaði á því að hitta Júlíu, Selmu og Leu. Þær fengu sér í glas á meðan ég drakk kók og svo fórum við á tónleikana. Þeir voru bara rosalega fínir og Hildur Vala var dúndurgóð. Við dönsuðum heilan helling og skemmtum okkur konunglega.. þangað til Lea steig í ælu!! Díses, þvílíkur viðbjóður! Jæja, þetta var samt fínasta kvöld og um kl. 2:30 hélt ég heim á leið... fegin að vera edrú og geta keyrt heim :o)

Bloggarar
Litlir bloggarar