Been there... broke that!

mánudagur, maí 16, 2005

Snilld

Kvöldskóli fyrir menn:

Hvert námsekið er 10 vikur og lýkur með skriflegu prófi.
Nemendur fá viðurkenningarskjal í lok námskeiðsins, sem þeir geta framvísað á alþjóðlegum markaði.

Námskeiðsnúmer og lýsing:

015501 - Hvernig á að smyrja brauðsneið á þess að setja eldhúsið á hvolf. Skref fyrir skref sett fram á myndrænan hátt.
mánudaga 17:00 - 18:30

015402 - Klósettpappír. Er það satt að maður geti sett nýja rúllu á klósettpappírhaldarann?? Verkleg æfing á verkstæðinu
þriðjudaga 18:00 - 20:00

035603 - Á að lyfta klósettsetunni áður en maður pissar? Er mögulegt að pissa án þess að hitta gólf, veggi eða setuna??? Verklegar æfingar.
Mánudaga 18:30 - 20:00

035604 - Grundvallarmunur á baðherbergisgólfinu og þvottakörfunni. Mynda, ferla og skipuritasýning.
Föstudaga 16:30 - 21:30

035605 - Er mögulegt að vera góður elskhugi til lengri tíma? Farið verður í grundvallarmuninn á "einna nætur gamans" og innihaldsríks kynlífs.
Þetta námskeið er í 3 þrepum, "það þarf meira en tippi til", "tímasetning og alúð í verki" og "konur elska með öllum kroppnum". Skrifleg próf og meðmæli ástkonu eru nauðsynleg til að færast á milli þrepa.
mánudaga 17:30 - 19:00

052206 - Tilvistarkreppa. Hefur þú tapað betri helmingum af sjálfum þér? Stuðningshópar og heimsóknir til íþróttamanna sem hætt hafa að spila.
laugardaga 19:00 - 20:30

072404 - Lært að leita að hlutum. Byrjað verður á því að fara í gegnum hvar hlutir eru vanalega geymdir og stress og öskurviðbrögð æfð. Leikþættir og raunverulegar lífsreynslusögur.
miðvikudaga 18:00 - 21.00

025408 - Að gefa konunni blóm og tækifærisgjafir hefur ekki skaðleg áhrif á sjálfið. Sett fram á mynd og hljóðformi.
föstudaga 17:00 - 20:00

011709 - Heilbrigðir menn spyrjast til vegar ef þeir villast. Gestafyrirlesarar og dæmi úr raunveruleikanum.
miðvikudaga 19:30 - 21:00

102210 - Konan undir stýri. Er mögulegt að sitja rólegur og hreyta ekki í hana ókvæðisorðum í föstudagsumferðinni?? Bílhermir.
mánudaga 18:30 - 20:00

101811 - Hugsum í víddum. Farið verður í grunn mismuninn á milli mömmu og kærustu/konu. Stuðst við handbók í byrjun, byggist annars á hlutverkaleik.
þriðjudaga 20:00 - 21:00

102512 - Er hægt að eyða degi í Kringlunni með fjölskyldunni? Afslöppunaraðferðir, hugleiðsla og öndunaræfingar.
föstudaga 15:00 - 21:00

171513 - Hvert er samhengið á milli leikja í ensku deildinni og merkisdaga í fjölskyldunni. Gerð persónulegra samhengiskorta og "Til hamingju.." æfingar.
þriðjudaga 18:00 - 19:30

Skráningarblað:

Nafn:
Hjúskapastaða:
Ár frá því að yfirgefið var foreldrahús:

Fyrri kunnátta:
Ryksuga:
Ná í börnin:
Ná í börnin á réttum tíma:
Uppvask:
Þvottur:
Grunnfærni í innkaupum:
Búa um rúm:

Leiðbeinendur munu hafa samband við umsækjendur, til ráðleggingar um hvaða námskeiðaval og hvaða stig hentar einstaklingum.

Námskeiðshaldarar


Gestir síðan 10. nóv. 2005:

Hit Counter
Website Hit Counters