Prinsessan á afmæli í dag.
Fyrir nákvæmlega þremur árum lá ég í baði á fæðingardeild Landspítalans með rosalegar hríðir. Þarna var ég búin að vera með hríðir í 16 tíma en ennþá voru 12 tímar í fæðinguna en prinsessan kom ekki í heiminn fyrr en kl. 22:43 um kvöldið. Þettta var rosalegt... en ég er strax farin að hlakka til að gera þetta aftur!
Ég var að biðja um að fá að vera í sumarfríi þ. 17. maí, sem er næsti þriðjudagur. Það þýðir að ég verð í fríi í fjóra daga þar sem næsta helgi er Hvítasunnuhelgin. Bjútífúl! En ástæðan fyrir fríinu þennan dag er sú að það er sveitaferð með leikskólanum hennar Andreu Óskar. Rikki tekur sér líka frí þannig að þetta verður skemmtileg fjölskylduferð, ég hlakka mikið til :)
Ég beilaði ekki á Survivor í gær. Ég horfði á þáttinn og veit ekki alveg hvort ég er ánægð eða ekki. Kannski af því að mér er nokkuð sama. Gregg var sætur og átti ekki endilega skilið að fara en mér fannst gaman að sjá svipinn á Jenn þegar hann var rekinn út. Ég skal hætta núna.
Fiskibollurnar kalla.....

Bloggarar
Litlir bloggarar