Been there... broke that!

föstudagur, maí 27, 2005

Lasarus

Ég er ekki búin að mæta í vinnuna síðan á þriðjudaginn vegna veikinda á heimilinu, fyrst hjá Andreu og svo mér. Ég fór til læknis áðan og er nú komin á pensilín! Jæja, þá hlýt ég að verða orðin góð á morgun.

Ég er ekki ánægð með úrslitin í American Idol, Bo átti að taka þetta! Hann verður frægari en hún, pottþétt.

Júlía er komin heim og hún kom vægast sagt færandi hendi. Hún keypti handa mér geggjaða peysu, buxur, bodyspray og eyrnalokka. Handa Andreu keypti hún 3 buxur, 2 pils, 2 boli, hettupeysu, kjól, sokka, skó og fullt af spennum og teygjum. Ég bara gapti og spurði hana hvort hún væri biluð, þetta eru ekkert smá geggjuð föt. Ég sagði henni líka að hún þyrfti ekkert að vera að eignast börn sjálf, hún mætti bara halda áfram að versla á mín í staðinn ;)


Gestir síðan 10. nóv. 2005:

Hit Counter
Website Hit Counters