Júró smjúró!
Jæja, þá er það komið á hreint. Ísland verður ekki í Eurovision keppninni á laugardagskvöldið. Ég ætlaði ekki að trúa þessu þegar þau voru búin að lesa upp þau 10 lönd sem komust áfram! Ég var alveg viss um að þau myndu svo bæta við einu landi til að troða Íslandi með, enda vorum við miklu betri en helmingurinn af þessum löndum sem komust áfram! Ég verð nú samt að viðurkenna að eftir að ég var búin að stara út í loftið af undrun í smástund þá gat ég ekki annað en sprungið úr hlátri. Þetta er ógeðslega fyndið... þjóðin var svo viss um að hún kæmist áfram og ekki bara það heldur líka að hún myndi bara vinna stóru keppnina. Já, þetta er áfall. Þjóðarsorg bara. Ég hugsa að ég nenni nú ekki að horfa á keppnina á laugardaginn. Kíki kannski á stigagjöfina og held þá með Danmörku, fannst þeir æði í gær.
Svo vil ég segja til hamingju við Fjólu og Maju en hún Fjóla átti afmæli í fyrradag og Maja á afmæli í dag. Til hamingju girls :)
Svo vil ég segja til hamingju við Fjólu og Maju en hún Fjóla átti afmæli í fyrradag og Maja á afmæli í dag. Til hamingju girls :)
Bloggarar
Litlir bloggarar