Been there... broke that!

þriðjudagur, maí 24, 2005

Ááááiiiii

Í dag eins og svo marga aðra daga þjáist ég af eyrnabólgu. Ég er orðin svo þreytt á þessu, mér er farið að líða eins og litlu barni sem þarf að fá rör! Andrea er heima lasin, með eyrnabólgu að sjálfsögðu og svo líka 38,5 stiga hita. Litla greyið, það eru ekki nema nákvæmlega þrjár vikur síðan hún var lasin síðast. Ég vinn til hádegis og fer svo heim til hennar en Birgitta systir ætlar að vera hjá henni þangað til.

Ég er ánægð með úrslitin í Survivor. Ég þori ekki að skrifa hver vann ef Hildur skyldi lesa þetta, held að hún eigi eftir að horfa. Þið megið alveg skrifa nafnið í kommentin, Hildur bara kíkir ekki þangað. Svo er það bara American Idol á fimmtudaginn og þá held ég með Bo! Mér finnst hann alveg geggjaður! Go Bo!

Ég er komin niður á 2. hæð í vinnunni sem þýðir að ég er hætt að leysa af í móttökunni á 3. hæð. Það er eitthvað svo rólegt hérna niðri að ég er hrædd um að hreinlega sofna í klofið á mér! Þetta er samt ótrúlega fínt og ég bara hlakka til sumarsins, annars eru ekki nema nokkrar vikur þangað til ég fer í sumarfrí. Ég verð frá 1. júlí-2. ágúst! Ohh það verður yndislegt!


Gestir síðan 10. nóv. 2005:

Hit Counter
Website Hit Counters