Been there... broke that!

miðvikudagur, maí 11, 2005

Geisladiskakaup

Haldið þið að ég hafi ekki bara splæst á mig geisladisk í gær?! Það eru örugglega 4-5 ár síðan ég keypti mér slíka græju síðast, maður hlustar bara á þetta í tölvunni. Það var s.s. diskurinn hennar Hildar Völu sem ég fjárfesti í en hann kom út í gær. Ég rétt renndi í gegnum hann þegar ég kom heim og ég held að ég elski bara öll lögin á honum eins og þau leggja sig. Mér finnst svo fyndið að það eru tvö lög á honum sem ég hélt mikið upp á þegar ég var unglingur en það eru lögin "Í fylgsnum hjartans" og "Luka". Það eru tvö önnur lög sem ég er nú þegar fallin fyrir og þau eru "Songbird" og "Röddin þín". Þau eru yndisleg, hlakka til að hlusta á leiðinni í og úr vinnunni :)

Ekki er hægt að líta franhjá því að úrslitin í ANTM eru í kvöld, hver haldið þið að taki þetta? Ég held því miður að Yaya vinni en ég vona að ég hafi rangt fyrir mér og það verði Eva... kemur í ljós.

Læt textana að tveimur síðarnefndu lögunum fylgja með =)

Songbird

For you, there´ll be no more crying.
For you, the sun will be shining.
And I feel that when i´m with you
it´s alright, i know it´s right.

To you, i´ll give the world.
To you, i´ll never be cold.
´Cause i feel that when i´m with you
it´s alright, i know it´s right.

And the songbirds are singing
like they know the score.
And i love you, i love you, i love you
like never before.

And i wish you all the love in the world.
But most of all i wish it from myself.

And the songbirds are singing
like they know the score
And i love you, i love you, i love you
like never before. Like never before.


Röddin þín

Ég verð að hringja, ég verð, ég verð
verð að heyra þig.
Við lögðum á og mér leiddist svo,
ég lagði mig.
Og gráu veggirnir grétu af sorg
og ég grét með þeim.
Og vissi þá að ég varð að hringja
í þig heim.

Því röddin þín, röddin þín,
rómur þinn yljar mér
og ég mun svífa ef þú svarar mér.
Því röddin þín, röddin þín
rómur þinn yljar mér
og ég mun svífa ef þú svarar mér.

Taktu upp símann, já taktu hann upp,
talaðu við mig.
Segðu orðin enn á ný;
ég elska þig.
Lestu sögu eða lestu ljóð
lestu hvað sem er.
Jafnvel einhverja auglýsingu,
sama er mér.

Því röddin þín......


Gestir síðan 10. nóv. 2005:

Hit Counter
Website Hit Counters