Föstudagurinn þrettándi...
Ætli maður verði nokkuð óheppnari í dag en aðra daga? Varla. Það er ljós punktur að ég er bara að vinna fram að hádegi og er svo komin í frí fram á miðvikudag. Ég mun líklegast eyða seinnipartinum í dag í að baka fyrir helgina... ekki nema 3 stk afmæli takk fyrir...
Af hverju vilja svona margir karlmenn eiga jeppa? Nú er þetta þannig að við Rikki erum á tveimur bílum, hann er með gömlu drusluna sem hann notar í vinnuna. Svo er ég er með Almeruna sem ég fer á í vinnuna og svo notum við hann þegar við förum eitthvað. Nú vill hann skipta um bíl, vill að við fáum okkur "jeppling" í staðinn. Fyrir mér er jeppi og jepplingur það sama, ég vil bara venjulegan, þægilegan fjölskyldubíl. Ég er hrædd inni í jeppum.. hvað þá ef ég keyri þá, guð minn góður!
Á morgun fer Júlía til New York og mun halda sig þar í heila 10 daga *öfund* Daginn eftir að Júlía kemur heim þá fer Íris til New York og verður í 8 daga! Já, þær passa sig á að yfirgefa mig ekki á sama tíma þessar elskur ;) Mig langar til útlandaaaa... hvert er ódýrt að skreppa svona yfir sumarið.. í júlí?

Bloggarar
Litlir bloggarar