Been there... broke that!

mánudagur, maí 09, 2005

Ein afmælisveisla að baki...

Já, þá er ein afmælisveislan búin... á eftir að halda 2-3 í viðbót (don´t ask). Ég hlakka eiginlega bara til, mér finnst gaman að baka og bjóða fólki í heimsókn :) Sérstaklega eftir að ég fékk nýja sófasettið mitt!! Jebb, við Rikki skelltum okkur í Sæta Sófa eftir vinnu á föstudaginn og splæstum í nýtt sett. Ég fór svo í IKEA á laugardaginn og keypti mér lampa sem mig er búið að langa í lengi. Ohh ég er ekkert smá ánægð með þetta :)

Júlía kom hálftíma fyrir afmælið í gær til að hjálpa til. Vá, hún var eins og stormsveipur. Yfir allt afmælið leið mér eins og ég væri með konu í vinnu hjá mér. Alltaf þegar ég ætlaði að fara að gera eitthvað var hún búin að því. Hún sagði mér svo eftir afmælið að þetta væri nú líka gert til þess að plata mig aðeins út með sér um kvöldið... þá væri ég búin að öllu ;) Ég skellti afmælisbarninu í rúmið og skrapp svo með Júlíu í kaffi á Catalinu. Vá, hvað var gott að setjast niður og slaka á :) Ég er svooo þreytt í dag að ég held mér varla vakandi. Ég er það þreytt að ég er alvarlega að spá í að beila á Survivor í kvöld og fara bara að sofa kl. 21. Við sjáum til hvort mér tekst það ;)

Jæja, þarf að koma mér á fund. Bletzen.


Gestir síðan 10. nóv. 2005:

Hit Counter
Website Hit Counters