Been there... broke that!

fimmtudagur, maí 05, 2005

Draumar og væl

Af hverju er ekki hægt að horfa á einn einasta Opruh Winfrey þátt án þess að grenja úr sér augun?? Er ég kannski ein um þetta? Annað hvort er hún að fjalla um eitthvað hræðilega sorglegt sem ég að sjálfsögðu hágræt yfir eða þá eitthvað yndislega fallegt.. þá græt ég bara úr gleði í staðinn. Æ, mér finnst hún góð kona. Ótrúleg alveg.

Mig er búið að dreyma endalaus rifrildi við bestu vinkonur mínar undanfarið. Þá meina ég sko hörkurifrildi, þannig að mér líður illa þegar ég vakna. Rifrildin hafa samt yfirleitt verið þannig að þær hella yfir mig skömmum og ógeði og ég reyni að verja mig. Hvað ætli þetta þýði?? Mér finnst þetta óþægilegt.


Gestir síðan 10. nóv. 2005:

Hit Counter
Website Hit Counters